Ár og aldir síðan ég kom hingað og þurfti ég aðeins að dusta rykið af síðunni minni

ég vona að mér sé sýndur oggu pínu skilningur með skrifin þar sem ég kemst ekki allveg alltaf frá til að skrifa smá blogg, en segist hér með að ég skrifa stundum í vefdagbókina á síðunni hjá henni Kristínu Emblu

en ég ætla nú að reyna að bæta úr þessu, Karen systir sagði mér bara að copy paste annann textann og setja á hinn staðinn. þá þyrfti ég ekki að vera að skrifa alltaf 2 sinnum á sitthvorn staðinn.... sem er nottlega bara snilld!! sjáum hvernig þetta fer hjá mér.........
Ég get nú ekki sagt að það sé mikið í fréttum... ég er enn heima með snúlluna og hélt ég væri það þangað til 1 júní..... een nei ég fer að vinna 1 mai

en hneykslist eigi... ég ætla til að byrja með að vinna þá daga sem Hannes er í vaktarfríi mai og júní, svo kemur sætasta litla systir mín og ætlar að dúllast með litlu frænku júlí og smá í ágúst svo fer hún til dagmömmu..... sem er Maja frænka mín

svo ekki þarf ég að setja hana til einhvern ókunnugan, og ég og Maja erum búnar að vera að hittast svolítið svo þær þekkjast orðið vel...
Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra hjá mér að sinni.. segi bara blesss og minni á að það eru alltaf nýjar myndir á heimasíðunni hjá Kristínu endilega kíkja og muna að kvitta í gestabókina...... www.barnaland.is/barn/66316 lykilorðið er það sem amma var kölluð (engin komma og y)